Flokkur: mblog

04.06.2011 16:39

Borgarverk við Slitlagsviðgerðir

Nú er verið að leggja slitlag í Víðidal. Fólk er hvatt til að aka varlega í kringum vinnuvélar og á nýju klæðningunni.

13.04.2011 10:27

Vegirnir skána

Sumir vegir eru að verða góðir. Sérstaklega þar sem búið er að hefla eins og Vatnsnesveg að vestan.

04.11.2010 13:23

Borað eftir vatni á Melstað.

Já, eins og stendur hér að ofan er þessi borvél nú stödd á Melstað þar sem menn freista þess að finna kalt vatn fyrir bæinn.

Vatnslaust hefur orðið nokkrum sinnum í sumar og haust vegna þurrka og því var tekið á það ráð að bora eftir vatni.
Miðað við það sem Séra Guðni sagði mér þá eru miklar líkur á að vatn komi í ljós á þessum slóðum. Þegar myndirnar voru teknar var búið að bora niður á um 80 metra dýpi en ekkert vatn var þá komið enn. 

Fleiri myndir í albúminu hér.


08.07.2010 09:55

Smábátahöfnin



Nýja flotbryggjan er komin á staðinn sinn í smábátahöfninni. En hvernig stendur á því að hún er ekki notuð? Er hún kannski óþörf eftir allt saman?

26.06.2010 12:07

Hér eru smá upplýsingar fyrir þá sem ekki muna opnunartíma Hirðu.

Hér eru smá upplýsingar fyrir þá sem ekki muna opnunartíma Hirðu.

20.06.2010 09:46

Utan þjónustusvæðis

Afsakið ágætt lesendur, en ég hef verið utan þjónustusvæðis seinustu daga. Þ.e.a.s. á austfjörðum í vellistingum hjá Ingibjörgu og Hinna, og þeirra fjölskyldum. Ég læt fylgja hér myndir sem ég hef tekið en þær eru teknar í Mjóafirði. 

Efri myndin er af skilti sem segir til um nafn á á einni er rennur ofan af fjalli og heitir þessu skrítna nafni.

Neðri myndin er af bænum Dalatang en lengra verður ekki komist á bíl þarna út með Mjóafirðinum að austan verðu.

01.06.2010 11:51

3G samband í Víðidal


Nú hefur verið settur upp 3G sendir við Víðigerði í Víðidal. Þetta þýðir að það er komið 3G samband, svo kallað háhraða netsamband sem virkar bæði í 3G gsm símum og fyrir tölvur fái maður sér netpung. Ágætis samband er í Víðidal en frekar lélegt í Vesturhópi. Reyndar er gott samband við austanvert Vesturhópsvatn en að vestan verðu í Vesturhópi er lélegt 3G samband.

Af þessu tilefni koma hér myndir sem teknar voru núna rétt áðan (um kl 11:35) og spurningn er erfið í þetta skiptið. Spurt er, hvað sést á myndunum?


Tölvupósturinn var sendur úr Sony Ericsson farsíma í gegnum 100% samband við 3G kerfi við Borgarvirki.

23.04.2010 13:45

Myndagetraun

Þá er komið að myndagetraun.

Sjálfsagt hafa einhverjir ekið yfir þessa brú og pælt mikið í því afhverju hún sé staðsett þar sem hún er. Og til að gera spurninguna dálítið erfiðari þá er myndin í "nekatívu". Spurningin er sem sagt: Hvað heitir áin sem rennur undir þessa brú?

15.04.2010 13:29

Brúarfréttir

Viðhaldsvinna á brú yfir Syðri Hvammsá er að komast á fullt. Hér sjáum við fyrstu handtökin við smíði á nýja hlutanum. Hallmundur Guðmundsson er hér að slá upp mótum sem á að steypa undirstöðukubba í.


Hér er svo Hallmundur að lokka mig inn í vagn til sín til þess að sýna mér alla gersemina þar inni.


Og það er margt að sjá inni í vagninum... svo sannarlega.

 Eins og komið hefur fram áður á að skipta um gólf í eldri hluta brúarinnar sem er sá vestari.


12.04.2010 13:01

Þá eru það vorverkirnir. Þeir felast í því að gera við skemmdir sem verða á slitlaginu úti á vegum.

Þá eru það vorverkirnir. Þeir felast í því að gera við skemmdir sem verða á slitlaginu úti á vegum. Hér sést í Baldvin þar sem hann er að ditta að tjörukerrunni. Einnig var Ingibjörn við vorverkin. Hans hlutverk var að plokka nagla úr vetrardekkjum undir einum vegagerðarbílnum.

  • 1