03.09.2010 17:49

Upplýsingaskiltið við Borgarvirki

Svona lítur upplýsingaskiltið við Borgarvirki út. Líklega hafa flestir sem heimsótt hafa Borgarvirki á undanfönum árum séð þetta skilti og tekið eftir því hversu afmáðar upplýsingarnar eru.



Skiltið var gefið af Verksmiðjunni Vífilfell fyrir mörgum árum. Ekki get ég munað hve langt er síðan eða að ég viti hverjum skiltið var gefið. En vissulega er kominn tími til að fá nýtt skilti því margir ferðamenn, þá sérstaklega erlendir og þeir sem ekki hafa kynnt sér tilurð Borgarvirkis, furða sig á því hversvegna þetta skilti er við Borgarvirki ef ekki er svo hægt lesa nokkurn einasta staf sem á því á að standa.



Svona lítur skiltið út núna.
Eru þær ekki fræðandi upplýsingarnar á því?

Septembermyndir.