Færslur: 2012 Febrúar

24.02.2012 22:13

Glæsilegir styrktartónleikar í Félagsheimilinu á Hvammstanga

Fimmtudagskvöldið 23. febrúar síðastliðinn voru haldnir glæsilegir styrktartónleikar til styrktar Írisi Emmu og foreldrum hennar, Hrannar og Þorsteini en Íris er nýfætt barn þeirra Hrannar og Þorsteins.

Tónleikarnir heppnuðust mjög vel að sögn gesta og mikil þátttaka var til tónleikahaldsins á meðal tónlistarfólks í héraðinu. 
Kirkjukórar úr héraðinu sungu ásamt barnakór Grunnskóla Húnaþings vestra, Karlakórinn Lóuþrælar söng við undirleik hljómsveitar, Lillukórinn söng fjögur lög við undirleik Elinborgar Sigurgeirsdóttur, Brynja og Hulda sungu saman tvö lög við undirleik Gunnars Ægis og Valda, Valdi og Ingunn sungu saman lög, Kristín og Ólafur tónlistarkennarar sungu við undirleik Elinborgar Sigurgeirsdóttur og Sigrún og Brynja sungu svo saman lag með hljómsveit.
Í restina sameinuðust Lóuþrælar kirkjukórunum og sungu saman lagið Megi gæfan þig geyma.

Hér að neðan má sjá og heyra þær Sigrúnu Dögg og Brynju Ósk syngja saman lagið Whenever god shines his light en um undirleik sjá undirritaður á píanó, Birkir Þór á bassa, Skúli Einarsson á trommur og Kristján Sigurðsson á gítar.


Og hér að neðan má sjá Brynju og Huldu flytja lagið Vegbúinn við undirleik Gunnars Ægis.



Inni á Norðanáttinni má sjá slatta af ljósmyndum frá tónleikunum.

19.02.2012 04:50

Bollur og aftur bollur



Brauð og kökugerðin á Hvammstanga verður opin í dag, sunnudaginn 19. febrúar frá klukkan 10:00 til 16:00.
Þar verður allt flæðandi í bollum af öllum stærðum og gerðum. 
Nú er um að gera að skutlast í bakaríið og gera góð kaup fyrir bolludagin svona af því að allar bollurnar sem keyptar voru í gær eru löngu búnar á heimilum sveitarfélagsins.

Brauð og kökugerðin.

18.02.2012 11:38

Húnvetnska liðakeppnin.

Það hefur allt verið á öðrun.... líklega hinum endanum hjá hestamönnum seinustu daga vegna Húnvetnsku liðakeppninnar.
Á síðu Þyts má sjá úrslit frá því í gærkvöldi en fyrsta kvöldið af fjórum fór þá fram í Þytsheimum á Hvammstanga.

En það getur verið gaman að búa til vídeó eins og það sem gert var til að kynna liðakeppnina og hægt að sjá hér á síðunni.
En hér að neðan má sjá svona "making of" vídeó. 
Njótið.


Þeir sem eiga eftir að sjá alvöru vídeóið sem gert var til að kynna keppnina geta séð það hér að neðan.


12.02.2012 23:06

Söngvarakeppnin 2012

Nú er runninn út frestur til að skrá sig í Söngvarakeppni Húnaþings vestra. 
EN vegna slatta áskoranna hefur frestur til að sækja um þátttöku verið lengdur til hádegis (kl. 12:00) þriðjudaginn14. febrúar.
Keppnin veðrur svo haldin laugardaginn 24. mars nk.

12.02.2012 01:16

Húnvetnska liðakeppni hestamanna

Tekið af vefnum thytur.123.is:

Þá fer að styttast í fyrsta mót Húnvetnsku liðakeppninnar en það verður 17. febrúar nk og verður að vera búið að skrá á miðnætti þriðjudagsins 14. febrúar. Skráning er hjá Kollu á mail: kolbruni@simnet.is. 

Keppt verður í fjórgangi í 1. flokki, 2. flokki, 3. flokki og flokki 17. ára og yngri (fædd 1995 og seinna) Það sem koma þarf fram er nafn og kennitala knapa, lið, hestur, IS númer og upp á hvora hönd á að ríða. Það verða tveir inn á í einu og er prógrammið í forkeppni, hægt tölt - fegurðartölt - fet - brokk - stökk og er stjórnað af þul. En úrslit verða riðin eins og venjulega, hægt tölt - brokk - fet - stökk - fegurðartölt.

Skráningargjaldið er 1.500 fyrir fullorðna og 500 fyrir unglinga 17 ára og yngri og verður að greiða inn á reikning 0159-15-200343 kt. 550180-0499 áður en mót hefst.

Aðgangseyrir er 1.000 en frítt fyrir 12 ára og yngri.

Mótanefnd 

Vídeóið hér að neðan er unnið til að vekja athygli á liðakepnninni. Njótið vel og lengi.



Landsbankinn er aðalstyrktaraðili Húnvetnsku liðakeppninnar.

11.02.2012 15:59

112 dagurinn

112 dagurinn var haldinn í dag á Hvammstanga sem og víðar á landinu.
Björgunarsveit, lögregla, brunavarnir, sjúkrabílar sameinuðust í hringakstri um Hvammstanga og tóku með sér farþega af yngri kynslóðinni.

Hér má sjá vídeó frá hringakstrinum um Hvammstanga.



Sæa og Rakel hjá Rauða krossinum gáfu svo yngri kynslóðinni svona armbönd með merki Rauða krossins.


Hér eru nokkrar myndir og enn fleiri myndir eru á heimasíðu Húna.


11.02.2012 09:30

Gott hjá Húnaþingi vestra



Eftir að Landsbankinn ákvað að fella niður lán stofnfjáraðila SpKef og að endurgreiða greiddar innborganir inn á lánin til sveitarsjóðs hefur sveitarstjórnin ákveðið að vara þeim fjármunum í hin ýmsu eininga er tengjast sveitarfélaginu, svo sem félagsheimilin, grunn- og leikskólinn, brunavarnir og fleira.
Þetta var ákveðið á sveitarstjórnarfundi þann 9. febrúar síðastliðinn.
Oddvitinn, Leó Örn lagði fram bókunina. Vefur Húnaþings vestra.

"Í bréfi Landsbankans dags. 26. janúar 2012 er sveitarstjórn Húnaþings vestra tilkynnt um þá ákvörðun bankans, í kjölfar niðurstöðu Hæstaréttar í málum stofnfjáraðila Byrs frá 24. nóvember 2011, að fella niður að fullu eftirstöðvar láns sem sveitarfélagið hafði tekið á árinu 2007 vegna kaupa á stofnfé í Sparisjóði Vestfjarða og stofnfjáraukningar í Sparisjóði Húnaþings og Stranda í aðdraganda samruna þessara sparisjóða við Sparisjóðinn í Keflavík alls kr. 17.333.463-. Í bréfinu er einnig greint frá þeirri ákvörðun Landsbankans að endurgreiða Húnaþingi vestra þær innborganir sem greiddar voru til Landsbankans hf. eða SpKef sparisjóðs samtals kr. 15.204.295-

Vegna þessa er nauðsynlegt að eftirfarandi komi fram:

? Þann 1. janúar 2012 voru eftirstöðvar áðurnefnds láns kr. 17.333.463- og verða þær felldar niður að fullu, afborganir af láni þessu á árunum 2012-2015 hefðu orðið alls kr. 23.293.921- að teknu tilliti til vaxta. Á árinu 2007 keypti sveitarstjórn Húnaþings vestra stofnbréf að fjárhæð kr. 166.028.781- Í lok árs 2007 er bókfærð stofnfjáreign sveitarfélagsins kr. 179.754.309-

? Ef ofangreind ákvörðun Landsbankans hefði ekki komið til hefðu heildargreiðslur sem Húnaþing vestra hefði greitt vegna stofnfjárkaupanna, að teknu tilliti til arðgreiðslna, endurmats og upphaflegs stofnfjár og vaxta vegna afborgana láns orðið alls kr. 156.131.918-

? Með áðurnefndri ákvörðun Landsbankans um endurgreiðslu og niðurfellingu eftirstöðva láns er heildarkostnaður Húnaþings vestra vegna stofnbréfakaupa á árinu 2007 alls kr. 117.633.702- Þannig hefur tjón sveitarfélagsins verið takmarkað um alls kr. 38.498.216-

Í kjölfar niðurstöðu héraðsdóms í málum stofnfjáraðila í Byr var þess óskað að Lex- lögmannsstofa tæki saman minnisblað um áhrif þeirrar dómsniðurstöðu á kröfu Húnaþings vestra í þrotabú Sparisjóðsins í Keflavík og ráðgjöf til sveitarstjórnar um rökrétt framhald málsins. Því var á fundi sveitarstjórnar þann 9. júní 2011 samþykkt af miklum meirihluta sveitarstjórnarmanna að fela Lex-lögmannsstofu að gæta hagsmuna Húnaþings vestra vegna kröfu sveitarfélagsins í þrotabú Sparisjóðsins í Keflavík og leita samkomulags við Landsbankann um meðferð eftirstöðva láns sem tekið var vegna stofnfjárkaupa árið 2007. Því er sú niðurstaða sem hér er kynnt í samræmi við væntingar um að unnt væri að takmarka tjón sveitarfélagsins."

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:

Í tilefni af áðurnefndri ákvörðun Landsbankans samþykkir sveitarstjórn Húnaþings vestra að ráðstafa endurgreiðslu kr. 15.000.000- til eftirfarandi verkefna á árinu 2012. Um er að ræða fjölbreytt samfélagsverkefni sem með einum eða öðrum hætti snerta íbúa Húnaþings vestra:

- Grunnskóli Húnaþings vestra: Kr. 2.000.000- til kaupa á húsgögnum í kennslustofur.

- Leikskólinn Ásgarður: Kr. 2.000.000- v/ aðgengis- og öryggismála með breytingu á aðkomu skólabarna.

- Brunavarnir Húnaþings vestra: Kr. 1.000.000- til búnaðarkaupa.

-       Vinnuskóli: Kr. 750.000- til endurbóta á húsnæði Vinnuskóla.

- Íþróttamiðstöð Húnaþings vestra: Kr. 1.500.000- v/ kaupa á læstum skápum í búningsklefa. Kr. 1.250.000- v/ kaupa á hlaupabretti í þrektækjasal.

- Tónlistarskóli Vestur-Húnavatnssýslu: Kr. 500.000- v/ hljóðfærakaupa.

- Bóka- og skjalasafn Húnaþings vestra: Kr. 1.000.000- v/ kaupa á skáp í héraðsskjalasafn.

- Íbúðir aldraðra í Nestúni: Kr. 500.000- v/ endurbóta / búnaðarkaupa.

- Félagsheimili í Húnaþingi vestra: Félagsheimilið Ásbyrgi kr. 500.000- v/ endurbóta / búnaðarkaupa. Félagsheimilið Víðihlíð kr. 500.000- v/ endurbóta / búnaðarkaupa. Félagsheimilið Hvammstanga kr. 500.000- v/ endurbóta / búnaðarkaupa.

- Ungmennaráð Húnaþings vestra: Kr. 500.000- verði ráðstafað að fengnum tillögum ungmennaráðs.

- Landbúnaðarráð Húnaþings vestra: Kr. 1.000.000- v/ viðhalds og endurnýjunar heiðagirðinga.

- Upplýsingaskilti í dreifbýli: Kr. 1.500.000- v/ merkinga á héraðs- og tengivegum.

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum. Fundargerð upplesin og fundi slitið kl: 16:35

08.02.2012 14:33

112 dagurinn



Laugardaginn 11. febrúar verður 112 dagurinn haldinn um land allt. Þar á meðal hér í Húnaþingi vestra.
Dagskráin er sem hér að neðan segir:



06.02.2012 13:52

Þorrablót í Ásbyrgi

Nú fer að styttast í Þorrablótið á Laugarbakka en það verður haldið laugardaginn 11. febrúar n.k. Húsið opnar kl. 20:15 og þorrablótið hefst svo kl. 20:45. Maggi Gæðakokkur frá Borgarnesi mun sjá um matinn og hljómsveitin EINN OG SJÖTÍU sér um að halda uppi fjörinu langt fram eftir nóttu. Munið að koma sjálf með borðbúnað.

Miðaverð á þorrablótið er 5.000 kr. á mann

Tekið verður við pöntunum fram til mánudagskvöldsins 6. febrúar n.k. Einnig er hægt að panta hjá Hauki Stefánssyni í síma 451-2642, Bjarneyju og Pétri í símum 849-081 og 869-7807 og Trausta Björnssyni í símum 451-2908 og 899-2904.

Forsala á miðum í sæti verður svo miðvikudaginn 8. febrúar í Ásbyrgi frá kl. 16:00-18:00. Hér gildir reglan fyrstur kemur, fyrstur fær. Hægt verður að greiða með tvennum hætti; með reiðufé, eða með því að leggja inn á bankareikning 0159-05-400965 kt. 210667-5559 og afhenda millifærslukvittun í miðasölunni. 

Aldurstakmark er 16 ár og verður gos selt á staðnum.

Einnig á Norðanátt.is

  • 1