26.01.2012 12:14

Opnun sorphirðutilboða í Húnaþingi vestra



Í dag klukkan 11:00 voru opnuð, hjá Ríkiskaupum, tilboð í sorphirðu í Húnaþingi vestra.
Hægt er að lesa allt um tilboðin og rýna í tölurnar sem bárust.

Sveitarstjórn Húnaþings vestra mun væntanlega fljótlega taka ákvörðun um hvaða fyrirtæki verður samið við.

Niðurstaðan er á þessa leið:

15145 - SORPHIRÐA Í HÚNAÞINGI VESTRA

Engar athugasemdir voru gerðar við framkvæmd útboðsins. 

Lesin voru upp nöfn bjóðenda og heildartilboðsfjárhæð og hvort um frávikstilboð sé að ræða. 

1. Sorphreinsun Vilhelms Harðarsonar ehf. 
Heildartilboðsfjárhæð: kr. 1.318.725,- 
Frávikstilboð: Nei 

Frávikstilboð 1: Verkkaupi annast sjálfur og á eigin kostnað rekstur gámastöðvar. 
Heildartilboðsfjárhæð: kr. 886.780,- 

Frávikstilboð 2: Verkkaupi annast sjálfur og á eigin kostnað rekstur gámastöðvar og fækkun í losanatíðni, fjöldi losana eru 17,3. 
Heildartilboðsfjárhæð: kr. 762.770,- 

Frávikstilboð 3: Verkkaupi annast sjálfur og á eigin kostnað rekstur gámastöðvar og breytt losanatíðni, fjöldi losana eru 26. 
Heildartilboðsfjárhæð: kr. 1.054.792,- 

Frávikstilboð 4: Verkkaupi annast sjálfur og á eigin kostnað rekstur gámastöðvar og endurvinnslutunna við hvert heimili, breytt losanatíðni, fjöldi losana eru 34. 
Heildartilboðsfjárhæð: kr. 1.187.732,- 

Frávikstilboð 5: Verkkaupi annast sjálfur og á eigin kostnað rekstur gámastöðvar og endurvinnslutunna við hvert heimili, breytt losanatíðni, fjöldi losana eru 39. 
Heildartilboðsfjárhæð: kr. 1.425.189,- 


2. Íslenska Gámafélagið ehf. 
Heildartilboðsfjárhæð: kr. 1.841.850,- 
Frávikstilboð: Nei 

Frávikstilboð 1: Sveitarfélagið sjái sjálft um alla þjónustu við gámasvæði 
Heildartilboðsfjárhæð: kr. 1.270.100,- 


3. HH Gámaþjónusta ehf. 
Heildartilboðsfjárhæð: kr. 1.738.179,- 
Frávikstilboð: Nei 

4. Urðun ehf. 
Heildartilboðsfjárhæð: kr. 1.117.232,- 
Frávikstilboð: Nei 


Íslenska gámafélagið, Gísli Ívarsson: vekur athygli á því að hvert tilboð skuli vera skilað í sér umslagi með tilheyrandi fylgigögnum. 

Ekki aðrar athugasemdir gerðar við framkvæmd fundarins....

Hér má sjá tölurnar á vef Ríkiskaupa.

26.01.2012 12:00

Vonda veðrið

Veðrið sem gekk yfir í gærkvöldi og nótt var ansi "fullorðins-blind-hríð".
Lóuþrælar voru við æfingu á Laugarbakka. Undirritaður er einn af þeim en um klukkutími leið frá því lagt var af stað frá Laugarbakka þar til komið var í hús á Ósi. Þetta er vegalengd upp á um 3,1 km samkvæmt kortinu hjá já.is. Svo blint var á leiðinni.

En við heimreiðina að Ósi stóð þessi bíll. Hann er um 40 tonn að þyngd og verður því ekkert auðvelt að ná honum upp.
Tilraun var gerð til þess í nótt að ná bílnum upp en sú aðgerð heppnaðist ekki.





Ekki er vitað um slys á fólki við þennan útafakstur.

25.01.2012 15:03

Veður...

Þessi orðsending var að berast á Facebook.

"Ábendingar frá veðurfræðingi kl. 15:40 - miðvikudag 25. jan.
Víðast verður mjög slæmt hríðarveður um norðvestan- og vestanvert landið í kvöld og nótt. Versnar mjög ofantil í Borgarfirði, á Bröttubrekku, Holtavörðuheiði og við Húnaflóann á milli kl. 18 og 20. Stórhríð og afleitt skyggni. Suðvestanlands hvessir snemma í kvöld með áframhaldandi snjókomu annað veifið í alla nótt. Skafrenningur og þá 
einnig á höfuðborgarsvæðinu. Meira og minna stórhríð á Vestfjörðum og utantil á Snæfellsnesi, en tekur að lagast undir morgunn. Við Eyjafjörð og norðaustanlands skánar mikið í kvöld, en versnar aftur með allhvössum NV-vindi og snjókomu snemma í fyrramálið, fyrst við Siglufjörð og Ólafsfjörð. Á sunnanverðu Snæfellsnesi má búast við vindhviðum yfir 30 m/s frá því í kvöld og fram eftir nóttu.
"

En svona var veðrið í morgun og fátt sem benti til þess að þetta hríðuarveður væri á leiðinni.



Fleiri myndir úr janúarmánuði hér.

18.01.2012 17:14

Steini í Sjálfstæðu fólki

Hver kannast ekki við Steina í Hippakoti?
Ekki allir kannski en nú gefst tækifæri til þess að kynnast honum betur því hann er umfjöllunarefni Jóns Ársæls í þættinum Sjálfstætt fólk á Stöð 2 á sunnudaginn 22. jan næstk.
Nánar á Vísir.is

Mynd: visir.is

14.01.2012 15:13

Þorrablót og Söngvarakeppni Húnaþings vestra

Nú fara þorrablótin að æða yfir okkur.
Þar má nefna fyrst þorrablót eldri borgara í Húnaþingi vestra sem verður haldið í Nestúni 21. janúar næst komandi.

28. janúar verður þorrablótið í Víðihlíð.

4. febrúar verður þorrablótið á Hvammstanga.

11. febrúar verður þorrablótið í Ásbyrgi.

18. febrúar verður þorrablótið á Borðeyri.



Og senn líður að söngvarakeppni.
Hún verður haldin í félagsheimilinu á Hvammstanga laugardagskvöldið 24. mars.
Þemað þetta árið er "Uppáhalds lagið mitt".
Skráning fara fram í síma 8970816 eftir klukkan 16:00 á daginn eða í netfangið saeunnv@gmail.com
Best er ef þátttakendur geti tilgreint hvaða lag þeir ætla að syngja meðfylgjandi skráningunni.
18 ára aldurstakmark.


Mynd söngvarakeppnisdeginum árið 2011.

11.01.2012 15:27

Vetrarfærð

Það er víst vetur. Þá snjóar og færð spillist.

Nokkrar myndir úr Norðurárdal og frá Holtavörðuheiði frá því í dag (11. jan 2012)
Fleiri með því að smella á mynd hér að neðan.





Myndirnar eru teknar við Hraunsnef og við Miklagil.

01.01.2012 00:15

Áramótakveðja

Húnaþingsbloggið óskar lesendum sínum og landsmönnum öllum gleðilegs nýs árs með kærum þökkum fyrir heimsóknirnar á því gamla.



30.12.2011 13:31

Lionsklúbburinn Bjarmi á Hvammstanga afhendir neyðarbúnað


Lionsklúbburinn Bjarmi afhenti nú í dag Heilbrigðisstofnun Vesturlands
á Hvammstanga neyðarbúnað sem nota á ef til þess kemur að sinna þurfi
hópslysi. Í ljós kom eftir sameiginlega hópslysaæfingu í Víðidal nú í
haust að nokkuð vantaði á þann búnað sem stofnunin hefur yfir að ráða.
Leitað var til ýmissa félagasamtaka í héraði um að styrkja búnaðarkaupin.
Lionsklúbburinn Bjarmi kom á mjög myndarlegan hátt að þessu verkefni og
afhenti Heilbrigðisstofnuninni á Hvammstanga í dag ýmiss konar búnað til
notkunar á vetvangi hópslysa alls að verðmæti um 300 þúsund krónur. Fram
kom í máli stjórnenda stofnunarinnar að nú væri stofnunin vel búin til að takast
á við stórt útkall þó svo að vonandi komi ekki til þess. Færðu þau félögum
í Bjarma innilegar þakkir fyrir rausnarlegan stuðning. Að öðrum ólöstuðum
hefur Hólmfríður Berentsdóttir deildarstjóri starfað ötullega að þessum
búnaðarkaupum fyrir hönd stofnunarinnar. Allmargir félagar í Lionsklúbbnum
Bjarma mættu við afhendinguna til að skoða búnaðinn og var virkni hans reynd
á nokkrum þeirra.



Á mynd frá afhendingu eru frá vinstri talið: Hólmfríður Berentsdóttir,
deildarstjóri, Valdimar Gunnlaugsson formaður Bjarma, Geir Karlsson
yfirlæknir, Gunnar Sveinsson gjaldkeri Bjarma, Helga Hreiðarsdóttir
yfirhjúkrunarfræðingur og Hörður Gylfason ritari Bjarma.

Hér má svo sjá vídeó frá afhendingunni.





30.12.2011 11:32

Sýslumaðurinn á Blönduósi tilkynnir


Vegna sameiningar Húnaþings vestra og Bæjarhrepps tilkynnist eftirfarandi hér með:

Hinn 1. janúar 2012 sameinast sveitarfélögin Bæjarhreppur og Húnaþing vestra og mun nafn hins sameinaða sveitarfélags verða eftirleiðis; Húnaþing vestra.

 

Eftirfarandi breytingar verða á opinberri þjónustu ríkisins í fyrrum Bæjarhreppi:

 

1. Sýslumaðurinn á Blönduósi tekur við verkefnum sýslumannsins á Hólmavík.

Helstu verkefni eru þessi:

a. Innheimta opinberra gjalda

b. Umboð fyrir Tryggingastofnun ríkisins.

c. Þinglýsingar

d. Sifjamál

e. Dánarbússkipti

f. Aðfararmál

g. Nauðungarsölur

h. Lögræðismál

i. Lögbókandamál

j. Ökuskírteini og vegabréf

k. Ýmis útgáfa leyfa

l. Skráning firma

 

2. Lögreglustjórinn á Blönduósi tekur við verkefnum lögreglustjórans á Vestfjörðum.

Helstu verkefni eru þessi:

a. Lögreglan á Blönduósi mun sinna eftirliti og útköllum.

b. Rannsóknir lögreglumála og úrvinnsla þeirra færist til lögr. á Blönduósi

c. Ýmis útgáfa leyfa færist til lögr. á Blönduósi.

 

Fyrsta þriðjudag í hverjum mánuði milli kl. 13:00 - 15:00 mætir sýslumaður / lögr.stjóri eða löglærður fulltrúi hans í umboðskrifstofu embættisins sem staðsett er að Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga.

 

Helstu upplýsingar um embættið:

Sýslumaðurinn á Blönduósi - Hnjúkabyggð 33 - 540 Blönduós -

Sími 455-2600 - Fax 455-2601 - Netfang blonduos@syslumenn.is

Kennitala 570269-5269 - Banki 0307 - hb. 26 - reikningsnr. 995

Skrifstofan er opin virka daga kl. 09 - 15:00. Símaþjónusta er á sama tíma.

 

Lögreglan á Blönduósi - Sama stað.

Sími 455-2666 - Fax 455-2667

 

Frekari upplýsingar um embættið er að finna á heimasíðum þess á: "syslumenn.is" og "logreglan.is".

 

Blönduósi, 29. desember 2011

Bjarni Stefánsson, sýslumaður á Blönduósi


29.12.2011 00:39

Flugeldasala



Flugeldamarkaðurinn í Húnabúð verður opin eftirtalda daga fram að áramótum

Miðvikudaginn 28.des.   14 - 17
Fimmtudaginn 29.des.   13 -18
Föstudaginn  30.des.  10 - 22
Gamlársdag 31.des.  9 - 15:30

Allur ágóði rennur til björgunarstarfssins

                            Björgunarsveitin Húnar